Starfsemi

Stærsti þáttur starfseminnar er rekstur skotvallarins og það sem honum tengist..

Einnig hefur móttaka skólahópa í kynningu og fræðslu verið ört vaxandi þáttur sem unninn er í samstarfi við ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Við setjum líka upp viðburði fyrir aðra hópa td. óvissuferðir, steggja/gæsa hópa, starfsmannafélög og fl. Móttökur fyrir fyrirtæki og opinbera aðila. Undanfarin ár hefur félagið séð um verklegan þátt skotvopnaleyfis fyrir umhverfisstofnun og aðstoðað við fuglatalningu sé þess óskað. Skotgreinahluti Landsmóts UMFI 2004 var haldinn á svæði félagsins,  einnig Norðurlandsmeistaramót í skeet 2008.

Ákvörðun stjórnar hverju sinni...1. Maí hefur oft verið opinn dagur á vallarsvæðinu þar sem starfsemin er kynnt og gestir fá að prufa undir leiðsögn skotfélagsmanna.Gestum undir 15 ára aldri er þó með öllu óheimilt að skjóta lögum samkvæmt.

Skotsvæðið:

Löglegur Skeet og Trapp völlur  með nýlegum Beomat vélum.

Riffilbraut með skýli og 3 borðum mörk á 25-50-100-150-200m.

Bogfimisvæði.

2021 ný Trappvél .

Vallarhús með kaffiaðstöðu og salernishús með vatnssalerni.

Félagsfundir  verða auglýstir sérstaklega á heimasíðu félagsins.

Bankaupplýsingar

Nafn:

Skotfélagið Ósmann

Farsími:

Jón Pálma 858-9233 Erlingur 852-2506

Heimilisfang:

Háahlíð 12

Staðsetning:

550 Sauðárkrók

Kennitala:

500791-2099

Bankanúmer:

0310---26---001900
Flettingar í dag: 614
Gestir í dag: 187
Flettingar í gær: 708
Gestir í gær: 209
Samtals flettingar: 246569
Samtals gestir: 33131
Tölur uppfærðar: 4.10.2023 20:47:24