StarfsemiStærsti þáttur starfseminnar er rekstur skotvallarins og það sem honum tengist.. Einnig hefur móttaka skólahópa í kynningu og fræðslu verið ört vaxandi þáttur sem unninn er í samstarfi við ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Við setjum líka upp viðburði fyrir aðra hópa td. óvissuferðir, steggja/gæsa hópa, starfsmannafélög og fl. Móttökur fyrir fyrirtæki og opinbera aðila. Undanfarin ár hefur félagið séð um verklegan þátt skotvopnaleyfis fyrir umhverfisstofnun og aðstoðað við fuglatalningu sé þess óskað. Skotgreinahluti Landsmóts UMFI 2004 var haldinn á svæði félagsins, einnig Norðurlandsmeistaramót í skeet 2008. Ákvörðun stjórnar hverju sinni...1. Maí hefur oft verið opinn dagur á vallarsvæðinu þar sem starfsemin er kynnt og gestir fá að prufa undir leiðsögn skotfélagsmanna.Gestum undir 15 ára aldri er þó með öllu óheimilt að skjóta lögum samkvæmt. Skotsvæðið: Löglegur Skeet og Trapp völlur með nýlegum Beomat vélum. Riffilbraut með skýli og 3 borðum mörk á 25-50-100-150-200m. Bogfimisvæði. 2021 ný Trappvél . Vallarhús með kaffiaðstöðu og salernishús með vatnssalerni. Félagsfundir verða auglýstir sérstaklega á heimasíðu félagsins. |
Bankaupplýsingar Nafn: Skotfélagið ÓsmannFarsími: Jón Pálma 858-9233 Erlingur 852-2506Heimilisfang: Háahlíð 12Staðsetning: 550 SauðárkrókBankanúmer: 0310---26---001900Flettingar í dag: 285 Gestir í dag: 42 Flettingar í gær: 467 Gestir í gær: 46 Samtals flettingar: 275872 Samtals gestir: 38654 Tölur uppfærðar: 3.12.2023 18:20:40 |
© 2023 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is