Í tilefni af 20 ára afmæli Skotfélagsins Ósmanns á Sauðárkróki mun félagið standa fyrir byssusýningu í Húsi Frítímans á Sauðárkróki.
Sýningin mun verða laugardaginn 7. maí nk og standa frá kl: 11:00 - 17:00
Þar munu verða til sýnis hluti af þeim vopnum sem eru í eigu félagsmanna og ýmislegt sem þeim tengist. Einnig verður sögu félagsins gerð einhver skil í máli og myndum. Félagar verða á staðnum, kynna starfið og svara fyrirspurnum.
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti, allir velkomnir og aðgangur ókeypis.