Eldra efni
|
06.10.2013 16:43Félagsfundur.Sælir ágætu félagsmenn. Minnum á félagsfund á morgun 06.10.13 í Rauðakrosshúsinu kl. 19.30
27.09.2013 13:57Umhverfisviðurkenning.Umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafa nú verið veittar í níunda sinn, en þær eru veittar í samstarfi við Soroptimistaklúbb Skagafjarðar. Farnar eru tvær ferðir yfir sumarið um allt sveitarfélagið, bæði dreifbýli og þéttbýli og auglýst eftir tillögum frá almenningi. Afhendingin fór fram í Húsi frítímans í gær og voru viðurkenningar veittar í sjö flokkum að þessu sinni. Í tilkynningu frá Soroptimistaklúbbnum segir að að loknum skoðunarferðum er valið úr hópi tilnefninga í samráði við garðyrkjustjóra Sveitarfélagsins. Lögð sé áhersla á að vanda val á þeim sem umhverfisviðurkenningarnar hljóta því margt hefur gott verið gert í þeim efnum. Umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2013 fengu: · Syðra-Skörðugil fyrir snyrtilegasta sveitabýlið með hefðbundnum búskap. Þar búa Sólborg Una Pálsdóttir og Einar Eðvald Einarsson. · Lindabær fyrir snyrtilegasta sveitabýlið án hefðbundins búskapar. Þar búa Helga Stefánsdóttir og Sigmar Jóhannsson. · Skagfirðingabraut 11 á Sauðárkróki fyrir snyrtilegustu lóðina í þéttbýli. Þar búa Halla Rögnvaldsdóttir og Haukur Steingrímsson. · Sauðárkróksbakarí fyrir snyrtilegasta umhverfi fyrirtækis · Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki fyrir snyrtilegasta umhverfi stofnunar. · Skotfélagið Ósmann sem einstakt framtak. · Smáragrund á Sauðárkróki fyrir snyrtilegustu götuna í þéttbýli.
09.09.2013 20:25Sumardagskrá lokið.Hefðbundinni sumardagskrá lauk í kvöld 9-9-2013 , með afabyssukvöldi , viðburðanefndin þakkar öllum sem komu á viðburði, fyrir sumarið. Skrifað af Einar. |
Bankaupplýsingar Nafn: Skotfélagið ÓsmannFarsími: Jón Pálma 858-9233 Erlingur 852-2506Heimilisfang: Háahlíð 12Staðsetning: 550 SauðárkrókBankanúmer: 0310---26---001900Flettingar í dag: 748 Gestir í dag: 55 Flettingar í gær: 1327 Gestir í gær: 55 Samtals flettingar: 779831 Samtals gestir: 79666 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:11:13 |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is